Sjálfbærniskýrsla Strætó 2023Mannauður

Lyk­il­töl­ur

Allir sem starfa í þágu Strætó mynda mannauð starfseminnar, hvort heldur sem þeir eru starfsmenn fyrirtækisins sjálfs eða annarra akstursaðila sem aka undir merkjum Strætó. Framtíðarsýn Strætó er að fyrirtækið verði eftirsóknarverður vinnustaður og dýnamískt þekkingarfyrirtæki.

Starfsmannafjöldi

Í desember 2023 störfuðu um 273 starfsmenn hjá Strætó, þar af 22% konur og 78% karlar. Meðalaldur starfsfólks er 48 ár.

Fræðsla

Fræðslustundir árið 2023 í námskeiðum sem krafist var viðveru voru alls 1.640 stundir, sem er nokkuð minna en árið áður. Alls voru 497 stundir í endurmenntun atvinnubílstjóra, 320 stundir í íslenskukennslu, 234 stundir í fræðslu fyrir nýtt starfsfólk og 589 stundir í aðra fræðslu. Í annarri fræðslu felst m.a. fræðsla um öryggismál (s.s. skyndihjálp, netöryggi og persónuvernd), jafnlaunakerfi og kynningartækni ásamt fleiru.

Á síðasta ári urðu ýmsar breytingar í fræðslumálum hjá Strætó. Ákveðið var að útvista endurmenntun atvinnubílstjóra til annars aðila, en áður var sú fræðsla haldin innan veggja Strætó. Ætla má að sú breyting skýri tímabundna fækkun fræðslustunda. Einnig urðu breytingar á fræðsluaðila íslenskukennslu fyrir starfsfólk Strætó og voru af þeim sökum ekki haldin námskeið á vormánuðum. Fræðslustjóri Strætó lauk störfum á árinu og nýr aðili tók við hans verkefnum.

Fræðslustundir 2023

Á árinu 2023 kláruðu fimm starfsmenn fyrsta stig í íslensku og þrír kláruðu annað stig. Frá árinu 2016 hafa alls 70 starfsmenn lokið fyrsta stigi og 60 hafa lokið bæði fyrsta og öðru stigi í íslensku á vegum fyrirtækisins.

Íslenskukennsla 2023

  • Hafa lokið stigi 1
  • Hafa lokið stigi 2

Fjöldi í íslenskunámi 2016-2023

  • Hafa lokið stigi 1
  • Hafa lokið stigi 2

Starfsmannavelta

Alls voru 30 starfsmenn ráðnir til fyrirtækisins á árinu, inn í þeim fjölda eru einnig sumarráðningar.

Heildarstarfsmannavelta árið 2023 var svipuð og árin á undan, fyrir utan árið 2021 þegar hún var eingöngu 3%, sem má mögulega rekja til áhrifa vegna covid-19 heimsfaraldurs. Starfsmannavelta fyrir árið 2023 var 9%.

Starfsánægja

Strætó leggur áherslu á að skapa starfsfólki jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi, efla starfsfólk og stuðla að virkni og ánægju þess. Allt starfsfólk ber sameiginlega ábyrgð á að skapa jákvæða og hvetjandi vinnustaðamenningu þar sem gagnkvæm virðing og starfsánægja er í fyrirrúmi.

Frá árinu 2015 hefur MMR og síðar Maskína framkvæmt árlega vinnustaðagreiningu fyrir Strætó. Starfsánægjan mældist 3,89 af 5 mögulegum þegar könnunin var framkvæmd í febrúar 2023.  Þá telja um 68% starfsfólks að góður starfsandi sé á vinnustaðnum. Um 63% starfsfólks myndi mæla með því við aðra að sækja um starf hjá Strætó.

Starfsánægja 2021 - 2023

Púlsmælingar - nýjung

Strætó innleiddi púlsmælingar á starfsánægju í desember 2023 og fyrsta könnun fór fram í sama mánuði. Þessar kannanir fara fram mánaðarlega og hafa fengið góðar undirtektir. Starfsmenn svara stuttri könnun með því að smella á hlekk í sms skilaboðum eða tölvupósti. Starfsánægja mældist 7,0 af 10 mögulegum í fyrstu mælingu í desember 2023 og 7,5 í janúar 2024.

Vinnustofa í nóvember

Vinnustofa starfsmanna var haldin 18. nóvember þar sem áhersla var lögð á þjónustu og jákvæð samskipti.  Það var sérstaklega góð mæting og starfsmenn voru ánægðir með daginn. Vinnustofan fór fram á íslensku en til  þess að ná til allra starfsmanna var notast við textatúlkun á ensku. Þessi aðferð kom mjög vel út og munum við án efa nýta okkur hana aftur.

Jafnvægisvog

Strætó var á meðal þeirra fyrirtækja og opinberu aðila sem hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar árið 2023. Jafnvægisvoginni er ætlað að auka á jafnvægi kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja í íslensku viðskiptalífi með það að markmiði að árið 2027 verði hlutfallið á milli kynja a.m.k. 40/60 í framkvæmdastjórnum fyrirtækja á Íslandi. Strætó hefur ávallt reynt að gæta þess að hlutfall kynja sé sem jafnast, enda er það ekki einungis hagur vinnustaðarins og viðskiptavina heldur samfélagsins alls. Það skiptir máli að fá alla að borðinu þegar kemur að ákvarðanatöku og erum við stolt af þessari viðurkenningu.


Heilsa og velferð

Strætó leggur áherslu á andlega, líkamlega og félagslega heilsu starfsfólks.

Strætó hefur mótað viðverustefnu sem hefur það að markmiði að draga úr fjarvistum vegna veikinda og styðja og hlúa að starfsfólki vegna fjarveru frá vinnu til lengri eða skemmri tíma með markvissum aðgerðum. Þá er áhersla lögð á að samræma verkferla vegna fjarvista, auka velferð og stuðla að vellíðan starfsfólks.

Strætó er í góðu samstarfi við Heilsuvernd sem sinnir meðal annars fjarvistaskráningum og ráðgjöf til starfsmanna í veikindum, trúnaðarlæknaþjónustu og fræðslu. Heilsuvernd framkvæmir árlegar heilsufarsskoðanir og bólusetningar gegn inflúensu fyrir þá starfsmenn sem vilja og eru þær starfsfólki að kostnaðarlausu.

Strætó er heilsueflandi vinnustaður og tók þátt í tilraunaverkefni með Landlæknisembættinu, Virk og Vinnueftirlitinu í janúar 2020. Markmið verkefnisins var að styðja vinnustaði í því  að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan alls starfsfólks. Þó að verkefninu hafi verið formlega lokið á haustmánuðum 2021 hefur Strætó haldið áfram að vinna út frá markmiðum verkefnisins og lagt sérstaka áherslu á að minnka streitu og álag í starfsumhverfinu.  Strætó býður til dæmis starfsmönnum reglulega upp á nudd og jóga á Hesthálsi, auk þess sem öllu fastráðnu starfsfólki býðst árlegur íþróttastyrkur.

Strætó og VÍS eru í góðu samstarfi um fræðslu og forvarnir. Meginmarkmið samstarfsins er að fækka tjónum og slysum. Frá árinu 2021 hefur verið lögð áhersla á að auka fræðslu og forvarnir vegna álags og streitu því þeir þættir geta haft töluverð áhrif á fjölda slysa og tjóna í umferðinni.

Starfsfólk Strætó tekur árlega virkan þátt í heilsueflingarátökum á borð við Lífshlaupið og Hjólað í vinnuna.


Öryggi og vinnu­vernd

Strætó er umhugað um að tryggja öryggi starfsmanna, farþega og almennings og leggur áherslu á að efla öryggismenningu.

Regluleg endurmenntun og fræðsla starfsmanna skiptir þar miklu máli svo vel takist til en um er að ræða langtímaverkefni sem stöðugt þarf að fylgja eftir. Strætó hefur unnið með VÍS að verkefnum sem miða að því að auka öryggisvitund starfsmanna og lágmarka slys og tjón sem hægt er að afstýra með beinum hætti.

ÁrFjöldi tryggingatjónaRétti / ÓréttiUpphæð tryggingatjónaFjöldi annarra tjónaUpphæð annarra tjónaSamtals fjöldi tjónaHeildarkostnaður allra tjóna

2020

66

37/29

20.880

92

27.230

158

48.111

2021

62

37/25

35.569

86

21.734

148

57.304

2022

79

45/34

26.872

164

44.450

243

71.322

2023

55

19/36

16.181

95

20.092

150

36.273

Allar fjárhæðir eru í þús. kr.

Heildarfjöldi slysa á síðasta ári voru 17 talsins og tilkynnt slys til tryggingafélags voru 7, en þess má geta að Strætó hefur ekki upplýsingar um slys sem tilkynnt eru til annarra tryggingafélaga. Slys sem tilkynnt eru til tryggingafélags teljast þau slys sem sannarlega hafa orðið að trygginga máli og teljast mögulega bótaskyld. Strætó tekur þó á móti tilkynningum og ábendingum um ýmis slys í gegnum ábendingakerfi sitt og fylgir þeim eftir.

ÁrHeildarfjöldiFall úr sætiÁreksturÍ og úr vagniHurðaslysAnnaðÞar af til tryggingaf.*

2020

11

2

0

0

2

7

2

2021

20

2

0

4

10

4

7

2022

23

4

2

1

12

4

2

2023

17

10

1

0

5

1

7

*Atvik tilkynnt til tryggingafélags Strætó bs.

Skráð vinnuslys hjá Strætó á árinu 2023 voru 14. Strætó vill lágmarka slys og sporna við slysahættu hvar sem er í starfsemi fyrirtækisins með fræðslu og forvörnum.

ÁrHeildarfjöldi vinnuslysa

2020

6

2021

8

2022

5

2023

14

Hjá Strætó er starfandi öryggisnefnd samkvæmt 6. grein laga um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Starfsmenn kjósa úr sínum hópi tvo fulltrúa og Strætó tilnefnir tvo fulltrúa. Nefndin hittist reglulega, fer yfir og ræðir aðbúnað, hollustuhætti og aðbúnað innan fyrirtækisins.

Strætó er í góðu samstarfi við VÍS um skráningu atvika, slysa og tjóna. Árið 2020 tók Strætó upp atvikaskráningakerfið ATVIK í boði VÍS. Þar er hægt að senda inn ábendingar um öryggismál, s.s. næstum slys, minni háttar slys, fjarveruslys og ógn (ofbeldi, áreitni og kynferðislega áreitni).


Kjara­mál

Strætó er fyrirtæki sem er í eigu sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Kjaramál starfsmanna taka því mið af lögum sem gilda um starfsfólk sveitarfélaga, 57. gr. sveitarstjórnarlaga 2011 nr. 138.

Kjör starfsfólks eru samþykkt í kjarasamningum sem Strætó gerir við Sameyki stéttarfélag og Samiðn, samband iðnfélaga. Þá hefur Strætó gert ráðningarsamninga við fjóra starfsmenn um aðild í öðrum stéttarfélögum en ávallt með vísan í kjarasamning viðkomandi félags við Reykjavíkurborg. Strætó virðir réttindi launafólks og fylgir lögum og reglum sem um þau gilda.

Starfsfólk er ýmist ráðið tímabundið eða fastráðið, allt eftir eðli og umfangi starfa.


Fjöl­breyti­leiki og jafn­rétti

Hjá Strætó starfar fólk af 18 mismunandi þjóðernum. Strætó leggur áherslu á fjölbreytileika, að komið sé eins fram við alla og að öllum séu veitt jöfn tækifæri.

Í árlegri vinnustaðagreiningu er lagt mat á frammistöðu Strætó í þessum málaflokki.

Starfsfólk af öllum kynjum í sömu eða sambærilegum störfum hafa jafna möguleika á að takast á við áhugaverð verkefni - 2023

  • Mjög sammála
  • Frekar sammála
  • Hvorki né
  • Frekar ósammála
  • Mjög ósammála

Á vinnustaðnum er komið eins fram við erlent og íslenskt starfsfólk - 2023

  • Mjög sammála
  • Frekar sammála
  • Hvorki né
  • Frekar ósammála
  • Mjög ósammála

Strætó hefur sett sér jafnréttis- og jafnlaunastefnu. Markmið jafnlaunastefnu er að tryggja öllu starfsfólki jöfn laun og kjör fyrir sömu eða jafnverðmæt störf. Í samræmi við jafnréttisstefnu Strætó skal þess gætt við ákvörðun launa og fríðinda að ekki sé mismunað á grundvelli kyns eða annarra ómálefnalegra þátta, samanber lög nr. 150/2020 um jafnan rétt kynjanna og lög nr. 86/2018 um jafna meðferð á vinnumarkaði.

Strætó hlaut jafnlaunavottun í október 2019 og endurvottun árið 2022 sem staðfestir að fyrirtækið starfræki jafnlaunakerfi sem uppfyllir kröfur staðalsins ÍST 85:2012 Jafnlaunakerfi- Kröfur og leiðbeiningar. Samkvæmt kröfum staðalsins framkvæmir Strætó reglulega launagreiningar. Árið 2023 var launamunur grunnlauna karla og kvenna 0,2 % þar sem hallar á konur, þ.e. karlarnir voru  hærri.

Strætó leggur áherslu á að koma til móts við óskir og þarfir starfsfólks til töku fæðingarorlofs. Árið 2023 fóru alls  8 starfsmenn í fæðingarorlof, 4 karlar og 4 konur.


Per­sónu­vernd

Strætó leggur ríka áherslu á að vernda persónuupplýsingar einstaklinga og virða réttindi þeirra samkvæmt persónuverndarlögum.

Þess er gætt að öll vinnsla persónuupplýsinga fari fram með lögmætum, sanngjörnum og gagnsæjum hætti og að skyldur Strætó sem ábyrgðaraðila persónuupplýsinga séu virtar í hvívetna. Árið 2022 var vinnsluskrá persónuverndar Strætó tilbúin og er hún uppfærð með reglubundnum hætti.


Upp­lýs­inga­ör­yggi

Strætó leggur áherslu á mikilvægi öryggis í meðferð og vinnslu upplýsinga.

Stjórnkerfi upplýsingaöryggis hjá Strætó byggir á ISO 27001 og lögum um persónuvernd. Jafnframt er Strætó með upplýsingaöryggisstefnu sem er aðgengileg á heimasíðu.